12.1.2007 | 14:20
Upp með tónlist.......
Þar sem ég er nú að læra til tónlistarkennara má ég til með að deila með ykkur hugsunum mínum sem að komu upp þegar ég horfrði á Kastljósið í gær. Þar þarf að fara að loka tónlistaræfingarhúsnæði unglinganna vegna mikilla fasteignagjalda og hafnagjalda. Reykjavíkurborg vill ekki styrkja þessa starfsemi, það er mjög furðulegt þar sem að margir unglingar nýta sér þessa þjónustu eða um 150 hljómsveitir í dag (það eru að meðaltali 4 í hljómsveit). Í þessu húsnæði verður þú að ganga vel um og mátt alls ekki neyta neinna vímuefna. Ég veit fyrir víst að þetta er eina húsnæðið fyrir marga unglinga til þess að æfa í því ekki eru allir skólar með aðstöðu til þess að lána undir svona tómstundargaman. Ekki hafa allir unglingar til umráða bílskúr eða þess háttar og er það því ljóst að margir unglingar verða að hætta að æfa sem hljómsveit í ljósi þessarra lokunnar. Við getum sagt Húrra fyrir Reykjavíkurborg og þakkað henni fyrir að hugsa vel um alla unglingana okkar .
Það eru ekki allir unglingar sem að vilja stunda íþróttir en nóg fer að peningunum til íþróttafélaganna. En engir peningar eru til ef unglingarnir hafa önnur áhugamál....
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.