15.1.2007 | 12:06
Myndataka í dag.....
Mánudagur.....gaman. Oft hafa verið samdir textar um mánudaga, yfirleitt fjalla þeir þá um hversu leiðinlegir mánudagar eru. Ég er ekki sammála því að mánudagar séu alltaf leiðinlegir. Þó svo að það komi fyrir að þeir séu verstu dagarnir í vikunni .
Einn textanna sem ég man eftir fjallar um unga stúlku sem að gekk berserksgang í skólanum sínum og drap samnemendur sína. Þegar yfirvöld spurðu hana afhverju hún hafi framið þessi voða verk þá svaraði hún "ég þoli ekki mánudaga" . Þetta á að vera sönn saga.....
En mér líður vel í dag. Ég er á leiðinni í myndatöku hjá stelpu sem að kallar sig Auju. Hún tekur bumbu og krílamydir. Ég ákvað að skella mér í þessar mydatökur þrátt fyrir að vilja ekki láta taka myndir af mér í þessu ástandi mínu.
En þá er einmitt tilvalið að fá fagmann í verkið sem að hjálpar manni að líta vel út á myndunum...... Hér er linkurinn hennar Auju. http://www.auja.net/ Ég mun svo skella nokkrum myndum frá henni hér á síðuna mína....
Hafið þið það gott í dag......
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.