16.1.2007 | 16:11
Þriðjudagur...
Í dag er þriðjudagur og ég var að koma úr skólanum. Það var bara þetta venjulega straumar og stefnur í tónlist. Annars þarf ég bara að mæta tvisvar í viku í skólann núna á þriðjudögum og föstudögum. Við áttum að mæta fjórum sinnum í viku en kennararnir vilja að við notum hina tvo tímana til lesturs heima þar sem að óvenju mikill lestur fylgir þessum áföngum.
Þetta eru góðar fréttir fyrir mig þar sem að ég ætla að klára námið þessa önnina og eignast kríli. Meiri möguleikar á að ég klári námið þegar ég þarf að mæta í færri tíma...
Er á leiðinni í kringluna í útsölubrjálæðið. Ekki til þess að kaupa eitthvað á útsölu heldur til að ná í lykil fyrir stöð 2. Já ég ætla að fá mér stöð 2 núna á meðan ég bíð eftir að meðgangan klárist. Ég geri ekkert annað á kvöldin nema að horfa á sjónvarpið ég hef hreinlega bara ekki orku í neitt annað og því hef ég séð alla þættina á skjá einum og ríkissjónvarpið sýnir ekki mikið af skemmtilegum þáttum. Svo núna er það bara ákveðið stöð 2 skal það verða....
Hafið þið það gott í dag.
Athugasemdir
Góður punktur...styð það...stöð 2 er með skemmtilegustu þættina... Kveðja
Guðný M, 16.1.2007 kl. 23:20
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.