Erfiðar nætur....

Undafarnar nætur hafa verið erfiðar. Mig dreymir fáránlegustu hluti nótt eftir nótt. Endalausir byssubardagar og óveður. Hef verið að spá í hvort að sjónvarpið eigi einhverja sök á þessu. En það gæti líka verið óléttan ????

Annars allt gott að frétta frá mér var á skvísufundi í gær og það var mjög gaman...SmileVið spjölluðum um allt milli himins og jarðar....Smile

Gleymdi að segja frá því að ég skellti mér í bíó um daginn á Mel Gibson myndina um Mayjana. Mjög flott mynd reyndar mikið blóð og ofbeldi en svona var þetta í Mexíkó. Vel farið með söguna um mann fórnirnar þarna.

Sá líka Children of men í vikunni , en ekki í bíó heldur á DVD. Mjög flott mynd og innihaldið fróðlegt þar lifðu allir í veröld þar sem að engin börn voru til. Góð mynd mæli með henni...fyrir alla. Grin

Í lokin vil ég minna alla á að klappa fyrir þreyttu þingmönnunum okkar sem að berjast um Rúv málið á þingi og hafa notað 100 klukkustundir í það. Mikilvægt málefni sem verður að finna lausn á.....InLove

Það er náttúrulega óþarfi að ræða mál fátækra, öryrkja, ellilífeyrisþega og annara manna í þjóðfélaginu. Við verðum að finna lausn á málum Rúv sem að hefur verið til í 77 ár. En auðvitað gengur illa að finna lausn á því máli þar sem að stjórnarandstæðan er etthvað að tjá sig og trufla gang mála. Þeir vilja bara að málinu sé frestað miklar ófreskjur þar á ferð. 

En í alvöru tilhvers er stjórnarandstæðan....Wink

Vona að þið hafið það gott í dag InLove...


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband