Tölvur og tónlist

Jæja skólinn á enda í dag og þá er bara að fara heim að læra.

Var í tíma sem heitir tölvur og tónlist  Smile   Gaman.....

Í dag vorum við að læra á Sybilius forritið. Ég hef reyndar notað það soldið sjálf en bætti þó við þekkingu mína á forritinu í tímanum í dag. Sybilius er sem sagt mjög merkilegt tónlistarforrit. Það virkar soldið eins og word en er notað til þess að skrifa nótur og útsetja tónlist. Ég mæli með þessu forriti fyrir alla þá sem hafa gaman af tölvum og tónlist. Við eigum eftir að læra meira á þetta forrit í vetur og kennarinn segir að þegar hann hafi lokið við að kenna okkur á það þá eigum við að geta útsett flóknustu sinfóníur í Sibelius...InLove

Sem sagt við verðum Sybilius meistarar....Whistling

En annars er allt gott að frétta héðan og allir hafa það gott Cool...

Hafið þið það gott í dag.....Og munið að brosa...Smile

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband