25.1.2007 | 11:39
Auðkennislykill......
Við hittumst allar skvísurnar í gærkvöldi eins og vanalega . Það var mjög gaman, og spjallað var um allt milli himins og jarðar. Eitt af okkar aðal umræðuefnum í gær voru þjóðfélagsmálin, hvað er að gerast, það er eins og að við fólkið í landinu séum einungis strengjabrúður ráðamanna.
Auðkennislykillinn er eitt af því sem að ég er mjög pirruð á þessa dagana. Afhverju þarf ég að hafa einhvern lykil til þess að nota heimabankann minn? Mér finnst skrýtin lykt af þessu. Er þetta í rauninni gert til þess að passa okkur fyrir þjófum og vondum mönnum? Ef svo er afhverju getum við ekki fengið svona lykil til þess að passa okkur fyrir brjáluðum ráða og viðskiptamönnum landsins .
Verðum við ekki að fara að gera eitthvað í þessum málum. Finnst okkur ekkert að því að vöru verð hækki upp úr öllu valdi en launin séu enn þau sömu hjá fólkinu. Er það ekki skrýtið að ráðamenn landsins geri allt sem að þeir vilji án þess að spyrja kóng né prest
Mér finnst þetta ekki í lagi ....
Hafið þið það gott í dag......
Athugasemdir
Æ þú ert svo fyndin. Það var æðislega gaman í gær hja Skvísubandalaginu! Kv Gunns
Guðný M, 25.1.2007 kl. 13:03
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.