26.1.2007 | 19:57
Útsölur.......
Jæja þá eru það útsölurnar. Fór með mömmu á útsölur.
Ekki fata útsölur því auðvitað kemst ég ekki í neinar stærðir sem að eru í boði í búðunum í bænum heldur fórum við á húsgagna útsölur. Og viti menn auðvtað fékk ég þá flugu í hausinn að mig vantaði sófa í stofuna. Í stað ljóta Ikea sófans sem að við erum með. Ikea sófinn er ekki gamall en hann er mikið notaður og pullurnar orðnar mjög lélegar í honum svo auðvitað er tíminn réttur núna þegar húsgagnaverslanir landsins eru með kosta kjör í gangi hjá sér að skella sér á nýjan sófa. Hringdi svo í Steina og fékk hann til að samþykkja þetta hjá mér en við ætlum að fara saman í leiðangur á mánudaginn og skoða sófana sem að mér leist vel á....Sniðugt....
En maður gerir allt í staðin fyrir að læra....
Annars er helgin frammundan og ekkert að gera hjá mér..
Vona bara að allir hafi það gott um helgina...
Athugasemdir
Stend með þér í sófabisnessnum! Góð hugmynd!
Guðný M, 28.1.2007 kl. 20:13
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.