Mánudagar eru nudd dagar.....

Jæja ég byrjaði vikuna á því að vakna kl 8 eins og flest allir landsmenn. Ég er ekki hrifin af því að vakna svona snemma og kem mér því oftast undan því svona er að vera námsmaður í dag....Smile

En ástæðan fyrir því að ég vaknaði svona snemma var að ég þurfti að mæta til ljósu og læknisins. Þær voru bara hressar og sögðu að allt væri eins og það ætti að vera fyrir utan kláðann. En læknirinn eiginlega lofaði mér því að hún myndi setja mig á stað á 38 viku sem er eftir tvær vikur en ég fæ það alveg á hreint í næstu viku.

Ég er mjög fegin nenni þessum kláða ekki mikið lengur. Var að hugsa um að verða Hindúi eða Búddi, þar sem að ég hugsa alla daga og sérstaklega allar nætur "mig klægjar ekki"Þetta er orðið soldið þreytt. Og mikil hugleiðsla sem að fylgir þessu ölluFrown...

Verð bara að muna að brosa því að þá er allt helmingi auðveldara. Og muna að klukkan tvö í dag fer ég í nudd á Nordika til Elínar vinkonu minnar. Þetta er munaður sem gerir lífið alveg yndislegt.

Ég mæli með því fyrir alla að gera eitthvað gott fyrir sig í byrjun vikunar þannig verður vikan mjög góð.Cool

Hafið þið það gott í dag.....InLove

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband