Það er leikur að læra....

Jæja þá er ég búin að fara til Baldurs íslenskukennara og í blóðprufu í dag. Ástæðan fyrir því að ég þurfti að hitta Baldur var sú að ég fékk hærri einkunn í skólanum fyrir ári síðan en önnur stelpa í skólanum og hún var ekki ánægð með það.Woundering

Blóðprufan var fín eins og vanalega ég fór frekar seint í dag vegna þess að ef ég mæti snemma um morgunnin þarf ég að bíða mjög lengi, þar sem að allir eldriborgararnir mæta snemma og láta taka blóðprufur af sér á þriðjudögum. Konurnar spurðu mig þrisvar sinnum hvort ég væri fastandi og trúðu mér eiginleg ekki fyrr en ég sagði þeim að ég hefði vaknað um ellefu í morgun. Fyndið Cool

Annars þarf ég að mæta í tíma núna í skólanum það er alltaf gaman að mæta í skólann.  Whistling

Vona að þið hafið það gott í dag....Tounge


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband