1.2.2007 | 13:34
Heros þættirnir og svefnleysi......
Það kannast allir við svefnleysi og pirringinn sem að því fylgir en svefnleysi er einmitt að hrella mig þessa dagana. Ég horfi bara á sjónvarp langt fram á nótt því að ég næ ekki að sofna, það er kláði bakverkir og svo ofur þreyta sem koma í veg fyrir að ég sofni. Ekki skemmtilegt
Það er eins gott að Steini kunni að sækja alla skemmtilegu þættina á netið eins og t.d Heros þættina en ég er búin að horfa á fyrst 12 þættina. Mjög spennandi þættir.
Ætla að reyna etthvað nýtt í kvöld gott te og mikla ró, ég vona að það gangi upp.
Annars var mjög gaman hjá skvísubandalaginu í gær við sátum lengi og kjöftuðum um allt á milli himins og jarðar. Það var líka full mæting og því mikið að spjalla um.
Vona að allir hafið það gott í dag..........
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.