5.2.2007 | 12:50
Kaffihúsakelling.....
Helgin mín samanstóð af því að liggja í dvala og horfa á sjónvarpið. Ekki spennandi fyrir 32 ára sjálfstæðan einstakling. Ég gat mig lítið hreyft ástæðan er ekki þunglyndi heldur ólétta svo ég fyrigef sjálfum mér þetta ástand mitt. En ég hugsaði samt hvað varð um gömlu góðu dagana þar sem að maður kíkti bara á kaffihús í stað þess að liggja í dvala ???? Svo fattaði ég það, ég er ekki mikið hrifin af því að vera út um allt í þessu ástandi mínu. En ætla samt að kíkja á kaffihús í kvöld í stað þess að liggja fyrir framan imbann í algjörri leti....
Núna er kláðinn kominn aftur og virðist vera alveg endalaus. Hann verður bara verri og verri, þetta er ekki gaman.
En núna er um það bil 10 dagar þangað til að lilli kemur í heiminn...Það verður gott að fá pláss í magan aftur. Við rífumst nefnilega endalaust um plássið ..Hérna er ein mynd sem að ég fann í tölvunni í skólanum af mér þegar ég var lítill. Vona að lilli verði svona...
Hafið þið það gott í dag.........
Athugasemdir
Halló - halló og góðan dag.
Af hreyfimyndunum að dæma af honum þá verður hann líkur þér. Allur á iði og munnurinn á stöðugri hreyfingu. Bara að hann verði nú ekki svona augnstór og tungulangur eins upptakaramyndin af þér.
Hafðu það gott sjálf í allan dag og á morgun líka.
Afinn (IP-tala skráð) 5.2.2007 kl. 12:58
Hæhæ skvísa!
Ég er fegin að þér datt í hug að fara á kaffihús. Það var geðveikt gaman hjá okkur! Bíð spennt efitir Lilla....ég held að hann sé að banka! Hann er að spekúlera að koma út fyrr en þú býst við honum!
Knús kveðja Guðný M
Guðný M, 6.2.2007 kl. 13:18
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.