8.2.2007 | 10:59
Vikudagarnir....
Var að velta því fyrir mér hvaða merkingu vikudagarnir hafa. Mánudagur til mæðu, þriðjudagur til þrauta, Miðvikudagur til mjalta, Fimmtudagur til fjárs, Föstudagur til frægðar, Laugardagur til lukku og Sunnudagur til sælu. Er þetta rétt hjá mér ?????
Er ekki viss en svona man ég þetta. Vorum að ræða á skvísufundinum hvort við vissum hvaða dag vikunar við værum fæddar og sumar vissu það. Ekki ég, verð að athuga þetta hjá mömmu.
Annars fer dagurinn minn í dag í það að læra á að skila verkefni á morgun sem að ég er ekki byrjuð á en ég ætla að byrja núna.....
Betra seint en aldrei....
Hafið þið það gott í dag....
Athugasemdir
Hey skvís. Er það ekki miðvikudagur til moldar....annars get ég aldrei munað þetta...það eru örugglega til margar útgáfur
Ég spái að litli gúbbi komi á laugardag...svona til að hafa það staðfest
Knús
Guðný M, 9.2.2007 kl. 11:08
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.