X FACTOR.....

Verð bara að deila minni skoðun á X factor með ykkur. Ég veit bara ekki hvað á að segja en að mínu mati er eitthvað mikið að eyrunum á dómurunum í þessari keppni. Ég tel mig hafa ágæta þekkingu á tónlist og því hverjir eru ágætir flytjendur og hverjir ekki en samkvæmt dómaranna áliti í X factor hef ég enga þekkingu. Þeir hampa flytjendum sem að eru rammfalskir að mínu mati "nema að það sé eitthvað að hljóðinu í sjónvarpinu mínu".

Það eru tveir keppendur sem að mér finnst syngja mjög vel og það er yngsta stelpan sem er í hópi Ellýar og færeyski gaurinn í hópnum hans Einars Bárða. Ég hef mjög gaman af dúettunum í keppninni og í rauninni halda þeir keppninni uppi þar sem að allir hinir eru bara venjulegir Jónar með ok raddir. Annars er hún Jóhanna frá Svíþjóð hræileg söngkona hún hefur ekkert vald á neðri tónunum en samt heldur Einar Bárða henni inni í kepninni í annað skiptið er hann heyrnadaufur ???? Eða er eitthvað annað þarna á bakvið ????

Ég á bara ekki orð.......Smile


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband