Valintínusardagurinn...

 Í dag er Valintínusardagurinn dagur elskenda. Minn gaur er nú bara að vinna svo vð gerum ekkert í tilefni dagsins ég gaf honum samt gjöf tölvu dót þannig nær maður til hans....Tölvunörri...

Annars ætla ég að eyða deginum með skvísunum mínum í Skvísubandalaginu á Vegamótum. Engin af okkur er upptekin í kvöld því að makarnir eru flestir að vinna. En okkur líkar það vel því að þessi félagskapur okkar er góður....

En við skötuhjúin förum nú sennilega út að borða á föstudagskvöldið í staðin nú ef að lilli fæðist ekki í millitíðinni. Mér finnast svona dagar nauðsynlegir þótt ég viti vel að Valintínusardagurinn sé ekki íslensk hefð  bara til þess að vekja fólk upp úr hversdagsleikanum og gera eitthvað gott fyrir sambandið sitt.

Og ef að þú átt ekki maka hvað er þá betra en að fá kort sms eða eitthvað álíka frá aðdáanda ???Smile

Hafið þið það gott í dag...InLove

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband