16.2.2007 | 11:41
Ekki á morgun heldur hinn....
Þá kemur loksins barnið í heiminn...Það verður æðislegt...
Verð svo fegin þegar þessu ferli er lokið..... Ég hlakka mest til að geta farið að fara í ræktina. Er farin að finna fyrir mikilli hreyfingaþörf. En ef allt gengur vel má ég fara tveimur vikum eftir fæðingu. Geðveikt gott. Ætla í átak sem er spes fyrir konur sem eru nýbúnar að eiga barn...Gaman..
Annars er allt gott að frétta héðan Dóri fræni var í heimsókn í gær og við spjölluðum mikið. Það var gaman að sjá hann þó svo að hann hafi farið að hlægja þegar hann sá mig honum fannst fyndið að sjá skvísu frænku sína svona þybbna eins og hann sagði samt í góðu.
Ætla að fara út að borða í kvöld kanski á Argentínu nammi hjá honum Ara sem er snilldar kokkur. Hann var á Einari Ben en fór svo yfir á Argentínu....
Vona að þið hafið það gott um helgina .....
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.