Alvara lífsins....

Jæja núna er ég með á hreinu hvað alvara lífsins er....Þetta hef ég loksins uppgvötvað þegar ég sit hérna heima allan daginn með litla prinsinn minn...En fyrir honum er ég gangandi mjaltarvél...og ég get ekkert gert nema að vera mjaltarvélin hans....Þótt þetta sé erfitt þá er það samt þess virði.´

Hef ekki en komist í skólann en fer í næstu viku. Var svo heppin að Svava kláraði verkefni fyrir okkur sem við skiluðum í þessari viku....Smile Það var voðalega gott.

Var reyndar að prófa að gefa lilla mínum snuð hann vill nefnilega sjúga allt. Það virkar svona brilljant hann er mjög ánægður með það og fer að sofa sjálfur í vöggunni sinni. Það eru skiptar skoðanir um snuðnotkun hjá litlum börnum og ljósan mín sagði mér að ég mætti ekki láta hann fá snuð fyrr en á 3 viku. En í dag hringdi ég í brjóstaráðgjafan á landspítalanum en hún var reyndar ekki við en konan sem að svaraði símanum var ljósmóðir og sagði mér að prófa snuðið.....

Svo ég gerði það.....

Annars er allt gott að frétta héðan Cool

Vona að þið hafið það sem allra best í dag...InLove

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband