Þá er að nota tækifærið...

Jæja núna get ég loksins bloggað smá. Núna notar maður bara þann tíma sem að maður getur til þess að blogga. Bara á meðan lilli sefur skiptir ekki máli hvort það sé dagur eða nótt.Smile

Í dag hringdi Hemmi úr skólanum í mig hann vildi vita hvort ég væri orðin mamma. Enginn í skólanum hafði heyrt neitt ég gleymdi víst að láta vita "Svo gömlu bekkjafélagarnir mínir vissu ekki alveg hvort ég væri búin að þessu eða ekki" Ég var búin að láta Svövu vita en hún er eingöngu í listhúsinu og hefur greinilega ekki hitt neinn úr gamla bekknum okkar nýlega...InLove Úbbbbs......

Vinnuskólinn hafði samband og bauð mér yfirmannastöðu í sumar sem sagt ekki leiðbeinandi heldur að vera yfir leiðbeinendunum. Auðvitað þurfti ég að hafna því boði þar sem að ég verð í barneignarorlofi. En Guðrún Skólastjóri bauð mér hana bara næsta sumar í staðinn hún sagði að ég væri svo góður starfskraftur að hún vildi ólm fá mig næsta sumar. Gaman að fá svona hrós...

Annars ætla ég að nota tímann í að kíkja smá á sjónvarpið núna þar sem að lilli gúbbi sefur vært núna. Það líður ekki á löngu áður en ég verð mjaltarvél fyrir hann aftur svo það er best að nota tímann minn vel núna...Cool

 

En héðan er bara allt gott að frétta við erum bara heima allann daginn en það fer að lagast....

Vona að allir hafi það gott......Wink

Hérna er prinsinn minn í fyrsta baðinu það var soldið skrítið....Smile

DSCF1810

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband