14.3.2007 | 10:34
Slæm nótt fyrir mig...
Jæja það var ekki mikið sofið í nótt lilli var bara vel vakandi enda ekki skrýtið þar sem hann hafði sofið allan daginn. En svona er þetta nú víst stundum.
Í dag fer ég í kórinn. En fyrir þá sem ekki vita þá er ég í kór Kennaraháskólans. Ég þurfti að byrja í honum vegna miskilnings á einingafjölda mig vantaði eina einingu til þess að útskrifast. Kennarinn minn vorkenndi mér og ég fékk að fara í kórinn og það er heil eining svo að þetta reddaðist...
Núna þarf maður virkilega að fara að virkja miðvikudagsfundina aftur. En eftir að ég átti virðist enginn fundur hafa verið...Verðum að finna út úr þessu skvísur....
Í gær heyrði ég í vinkonu minni sem að býr á Þórshöfn Ég hef ekki heyrt í henni í langan tíma svo það var virkilega gaman að heyra í henni. Hún er að fara að gifta sig þann 28 júlí og ég ætla að reyna að mæta í brúðkaupuð. Gaman að sjá hvernig hún býr svona í sveitinni. Ég setti línkinn af blogginu hennar inn á síðuna mína undir tenglar vinir mínir endilega kíkið á hana flott síða Kristín Heimisdóttir.
En verð að kveðja skyldan kallar...
Vonandi hafið þið það gott í dag....
Athugasemdir
Já hvernig væri að fara að halda miðvikudagsfundum áfram...er búin að vera löt við þá.
Kv. Elín
Elín (IP-tala skráð) 14.3.2007 kl. 11:56
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.