21.3.2007 | 12:05
Tilviljun eða hvað ????
Ég veit ekki hvort það er grasaseiðið eða hvað. En allavegna var magakveisulaus dagur í gær. Sonur hennar Ástu grasalæknis sagði að ef seiðið virkaði strax þá ættum við að láta einn og hálfan dag duga og ef verkirnir kæmu aftur þá ættum við að byrja aftur. Ég þarf líka að taka sopa af þessu seiði og það er mjög vont á bragðið. Lilli kúgast líka þegar ég gef honum það og er ekki sáttur en ef það losar hann við magapínu í tvo tíma þá er mér sama.
Fer í skólann á eftir á kóræfingu er ekki búin að æfa lögin sem við ætlum að syngja en ég finn út úr þessu.
Er á fullu að reyna að gera ritgerðina en það gengur seint verð að fara að setja í gírinn.
Fór aðeins út með lilla í gær vissi ekki að það væri komið hálfgert óveður svo að ég var bara í stutta stund....
Hitti svo Eyrúnu og Sigurveigu á kaffibarnum í klukkutíma í gær það var fínt...
Vonandi hafa allir það gott í dag verðum í bandi....
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.