Kennó að verða búin...

Jæja þá er ekki mikið eftir af þessarri önn í kennó Cool. Á eftir að fínpússa tvær ritgerðir og skila þeim fyrir vikulok og þá er þetta bara búið og ég orðinn löggildur kennari Wink. Cool.

Mér finnst þetta soldið skrítið því í þrjú ár hef ég haft kennararéttindin til þess að stefna að en núna þá er því lokið og hvað þá ???? Á ég að fara að kenna eða í áframhaldandi nám ??? Bara að velta þessu fyrir mér.

Annars er allt gott að frétta héðan erum að fara í sumarbústað um næstu helgi. Það verður fyrsta ferðalagið hans Þórs Jökuls. Og verður spennandi að sjá hvernig gengur.

Hitti stelpurnar mínar á miðvikudag og er strax farin að hlakka til. Það verða eflaust nokkrar krassandi sögur sem maður fær að heyra þá...Smile 

Bið að heilsa í bili....InLove


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband