19.5.2007 | 09:26
Veit ekki hvað á að gera...
Núna er ég búin með allt í skólanum og er búin að gera mér grein fyrir því að ég kann ekki að slaka á. Ég er stöðugt að finna mér verkefni því annars hund leiðist mér bara. Ég er auðvitað alltaf með lilla minn og því get ég ekki sinnt nærri því öllu sem að ég var vön að sinna áður en að hann kom í heiminn.
Í dag ætla ég t.d að fara að skoða sófa mig vantar nýjan flottan sófa í stofuna en ég veit bara ekki hvar ég fæ flotta sófa . Ætla að kíkja í einhverja sófabúð í Síðumúla vinkona mín sagði að þar væru flottir sófar. Ætla að tékka það.
Svo kíkjum við kanski í barnaafmæli ef að við verðum ekki þreytt.
Endilega látið mig vitaef að þið finnið verkefni fyrir mig...
Hafið þið það gott í dag.
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.