30.5.2007 | 10:00
Orðin Beddari fyrir víst.....
Jæja þá er ég búin að fá úr öllum prófum og ritgerðum úr skólanum... Ég útskrifast með pompi og prakti þann 16 júní 2007 með fyrstu einkunn. Það er bara alveg það sem að ég ætlaði að gera. Markmiðinu náð Það er ótrúlegt að hugsa til þess að fyrir þremur árum var mamma að nöldra í mér og segja að ég yrði að fara í skóla. Ég sótti um Lögfræði, Viðskiptafræði og Kennó og ég komst inn í allt en valdi að fara í kennó það er ekki auðvelt að komast inn í kennó. Ég sé ekki eftir því í dag er ég orðin kennari og er ánægð með það .
Vona að þið hafið það gott í dag
Athugasemdir
Hey þú ert svo dugleg! Til hamingju með þetta...þessi 3 ár hafa samt verið ótrúlega fljót að líða, mér finnst þú nýbyrjuð í skólanum! Knús og kossar!
Guðný M, 1.6.2007 kl. 12:46
Til hamingju með það vantar alltaf góða kennara.
Hafrún Ásta og co (IP-tala skráð) 10.6.2007 kl. 17:27
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.