2.10.2007 | 09:40
Frímó
Sit hérna í frímó í aðferðafræðitíma í HÍ svaka maka gaman sama aðferðafræðin og ég lærði í Kennó en ég verð að rifja hana upp því að þar lærði ég hana rétt fyrir próf og setti allar upplýsingarnar í skammtímaminnið í stað langtímamnnisins GOTT Á MIG. Annars eru þetta ágætir tímar hér og kennarinn er skemmtilegur. Allt er í góðu nema það að ég er að sofna. Ég vaknaði kl 5:00 í nótt og er búin að vera vakandi síðan svo augnlokin síga neðar og neðar hérna í tímanaum hjá mér. Ég reyni samt að glósa vel á tölvuna til þess að halda mér vakandi en stafirnir á lyklaborðinu bara hreinlega renna saman HAHAHA svona er lífið hjá mér verð að leggja mig á milli tíma hjá mér held ég nái því að fara heim og leggja mig í klukkutíma Þetta geri ég svo í frímó .....Skrifa hér á bloggið mitt.
Annars er allt gott að frétta að heiman Þór Jökull er algjör elska þó svo að hann vakni oft snemma á nóttunni. Hann er í spes svefnprógrammi og það hefur gengið mjög vel en það gætu verið tennurnar sem að eru að vekja hann litlann minn svona snemma á nóttunni.
Vona að allir hafið það gott. Þangað til næst kv..........
Athugasemdir
hey krútta.......hann Þór Jökull krúsídúlla stjórnar heimilinu og heiminum..... gott að venjast því sem fyrst! Hlakka til að sjá þig á morgun!
Guðný M, 2.10.2007 kl. 21:58
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.