19.10.2007 | 08:30
Helgin mín
Núna í dag er Þór Jökull orðin 8 mán og ekki nema 4 mán í að hann verði 1 árs. Voðalega er tíminn alltaf fljótur að líða fyrr en varir verð ég orðin gömul með son á fermingaraldri. Hvað verð ég gömul þá ég ætla ekki einusinni að skrifa þá tölu.
Annars er allt gott að frétta brjálað að gera í skólanum og brjálað að gera á heimilinu. Ég þarf að skila verkefnum í skólanum núna eftir helgi svo að ég tileinka helginni verkefnavinnu og labbitúrum í bænum þar á milli.
Ég skil bara ekki alveg hvernig manni datt í hug að fara strax í Ma nám eftir kennaraháskólann. En fyrst ég er byrjuð þá verð ég að klára þannig er ég bara.
Góða helgi allir saman.
Athugasemdir
Já trúðu mér....það verður stutt þangað til þú fermir drenginn....tíminn er svo fljótur að líða...
Guðný M, 19.10.2007 kl. 14:09
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.