27.4.2008 | 11:22
laugardagskvöld hjá mér
Jæja nú ætla ég að koma með smá reynslusögu af nýju laugardagskvöldunum á mínu heimili.
Það byrjar á því að reyna að koma litla kút í rúmið en það getur oft verið smá ves.
Eins og til dæmis í gærkvöldi þá var hann eitthvað órólegur og leiður. Þegar við erum á leið í rúmið þá byrjar litla skinnið að æla og það ekkert smá (alveg eins og í Alien myndunum) bara gusan yfir mig. En það var ekki búið því nokkrar gusur komu svo á eftir. Þarna stóð ég sem sagt út æld með litlakút út ældan í fanginu og hugsaði já svona eru þá laugardagskvöldin mín orðin.
Ps. Steina fannst þetta eitthvað fyndið, það eina sem að hann hugsaði um var að taka mynd af þessum atburði en ekki rétta hjálparhönd.
Svo reyndar hljóp hann til við að hreinsa herlegheitin (þá meina ég skúra allt skipta á rúmum og fleira) á meðan við Þór Jökull skruppum í sturtu.
Hverjum hefði dottið þetta í hug fyrir tveim árum síðan HEHE.
Ekki mér.
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.