29.4.2008 | 23:18
Próf í fyrramálið vinnuréttur
Hverjum hefði dottið það í hug að ég færi að læra lög og reglur ?????
En þá er komið að fyrsta prófinu í törninni. Prófið sem ég fer í fyrst er vinnuréttur. Ef að einhver segir ykkur upp eða þið teljið að brotið hafi verið á ykkur á einhvern hátt í vinnunni þá endilega hafið samband (ég veit allt um þetta) HEHE. Einnig ef að þið verið veik eða lendið í slysi ásamt túlkun á kjarasamningum og annað. Þetta er mjög skemmtilegt.
Annars nenni ekki að læra meir þetta verður bara að nægja. Hjátrúin segir mér að hætta núna (ég get ekki bjargað neinu á nokkrum klukkutímum ).
Verð bara að treysta á minnið núna.
Svefninn er mikilvægastur þegar kemur að próftöku því segi ég góða nótt og sofið rótt. Það ætla ég allavega að gera
Athugasemdir
Gangi þér vel í prófunum. Ég er viss um að þú rúllir þessu upp kona!
Kveðja úr Hveragerðinni
Guðrún Arna Möller (IP-tala skráð) 7.5.2008 kl. 14:44
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.