11.5.2008 | 23:17
góð leið fyrir karmenn sem vilja fara í megrun.
Steini minn var eitthvað að tala um hvort ekki væri mál að fara í megrun !!!!!
Ég eins jákvæð og vanalega sagði honum frá aðferð sem að ég er nýbúin að heyra um hér kemur lýsing á þessari aðferð .
Megrun fyrir karlmenn
Maður hringir í fyrirtæki og pantar hjá þeim "misstu 5 kg á 5 dögum" pakkann.
Daginn eftir er barið á dyrnar hjá honum og fyrir utan stendur íturvaxin 19 ára snót í engu nema Nike hlaupaskóm. Um hálsinn á henni hangir skilti sem á stendur "Ef þú nærð mér, þá máttu eiga mig".
Hann lætur ekki segja sér það tvisvar og stekkur á eftir henni. Eftir nokkra kílómetra er hann orðinn móður og másandi og gefst upp. Sama stúlkan mætir á þröskuldinn hjá honum næstu 4 dagana og það sama gerist í hvert skipti. Á fimmta degi vigtar félaginn sig, og viti menn, hann hefur misst 5 kg.
Hæstánægður með árangurinn hringir maðurinn aftur í fyrirtækið og pantar hjá þeim
"misstu 10kg á 5 dögum" pakkann.
Næsta dag er bankað á dyrnar og fyrir utan stendur einhver sú fallegasta og kynþokkafyllsta kona sem hann hefur á ævinni séð. Hún er eingöngu klædd í Reebok hlaupaskó. Um hálsinn á henni hangir skilti sem á stendur "Ef þú nærð mér, þá máttu eiga mig".
Eins og elding tekur hann á rás á eftir skvísunni. Hún er auðvitað í fantaformi og þó hann reyni sitt besta nær hann henni ekki. Næstu fjóra daga heldur þessi rútína áfram og hann kemst smám saman í betra form. Á fimmta degi vigtar hann sig og sér til ómældrar gleði hefur hann misst 10 kg.
Hann ákveður að leggja allt í sölurnar og hringir og pantar "misstu 25 kg á 7 dögum" pakkann. "Ertu alveg viss?"spyr sölumaðurinn " Þetta er erfiðasta prógrammið okkar"
"Ekki spurning" svarar félaginn, "mér hefur ekki liðið svona vel í mörg ár".
Daginn eftir er barið á dyrnar, og þegar hann opnar stendur risastór, helmassaður karlmaður fyrir utan í engu nema bleikum hlaupaskóm.
Um hálsinn á honum hangir skilti sem á stendur "Ef ég næ þér, er rassinn á þér MINN!"
Félaginn missti 32 kg í þeirri viku.
Bara smá grín héðan þar sem að prófleiðinn er að drepa mig.
Kv frá Háteigsveginum.
Athugasemdir
Ja, þú velur ekki auðveldustu megrunarkúrana fyrir karlinn... HA HA HA HA HA Njótið dagsins krúttbombur
Guðrún Arna Möller (IP-tala skráð) 12.5.2008 kl. 12:55
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.