Jæja þá eru jólin búinn

InLoveJæja þá eru jólin búin og alvara lífsins að byrja. Eins og skólinn en ég byrja á morgun í verkefnavinnu fyrir bed verkefnið mitt. En það er rannsókn um það hvort tónlistariðkun hafi áhrif einkunnir unglinga. Ég var hjá mömmu í dag að kóda spurningalistana en hún var að kenna mér á SPSS forritið sem er mjög gott og flott forrit fyrir svona vinnu. Ég er reyndar mjög heppin að mamma kunni svona mikið og geti hjálpað mér íþessari vinnu. Annars er ég ekki ein að gera þessa rannsókn hún Svava sem er með mér í skólanum er að gera hana með mér.Grin

Ég fór svo í mat í kvöld hjá foreldrum Steina það var hryggur í matinn mjög góður...NAMM NAMM. Ég er reyndar heppin með að vera oft boðið í mat því ég elda aldrei sjálf. Enda ekki gaman að elda bara fyrir sjálfan sig. Wink

Eftir matinn er maður náttúrulega svo saddur að maður fer bara á leiguna og tekur eina spólu leggst í sófann og hefrur það gott. Ég þarf reyndar að fasta frá kl 12 að miðnætti því ég fer í blóðprufu í fyrramálið svo til ljósu og svo til læknisins. Þetta er alltaf sama stuðið. Smile

Annar sé ég að ég hef fengið nokkrar heimsóknir á síðuna mína og það finnst mér gaman að sjá endilega skráið ykkur í gestabókina þegar þið skoðið síðuna , sem notabene er en þá í vinnslu hjá mér og gefið mér góð ráð ef þið hafið þau... InLove


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband