Færsluflokkur: Bloggar
8.1.2007 | 11:58
Venjulegur janúar dagur......
Jæja þá er það bara að hisja upp um sig og mæta í skólann í dag. Fara að vinna í lokaverkefninu á fullu og allt það. Vona bara að allir séu kátir í dag því janúar er nú ágætis mánuður þrátt fyrir kulda og myrkur
.
Annars var að koma frá lækninum á landspítalanum og hún sagði mér að á 37 viku myndum við ákveða hvort lilli kæmi í heiminn á 38 viku.....En annars er allt gott að frétta af honum búin að snúa sér og allesss.
Þrátt fyrir að vera að byrja í skólanum þá vorkenni ég fólki sem er að vinna. Það er svo notarlegt að vera ekki í vinnu heldur í skóla...BROS!!!!!
Ein bjartsýn í dag......
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
7.1.2007 | 21:23
Jæja þá eru jólin búinn
Jæja þá eru jólin búin og alvara lífsins að byrja. Eins og skólinn en ég byrja á morgun í verkefnavinnu fyrir bed verkefnið mitt. En það er rannsókn um það hvort tónlistariðkun hafi áhrif einkunnir unglinga. Ég var hjá mömmu í dag að kóda spurningalistana en hún var að kenna mér á SPSS forritið sem er mjög gott og flott forrit fyrir svona vinnu. Ég er reyndar mjög heppin að mamma kunni svona mikið og geti hjálpað mér íþessari vinnu. Annars er ég ekki ein að gera þessa rannsókn hún Svava sem er með mér í skólanum er að gera hana með mér.
Ég fór svo í mat í kvöld hjá foreldrum Steina það var hryggur í matinn mjög góður...NAMM NAMM. Ég er reyndar heppin með að vera oft boðið í mat því ég elda aldrei sjálf. Enda ekki gaman að elda bara fyrir sjálfan sig.
Eftir matinn er maður náttúrulega svo saddur að maður fer bara á leiguna og tekur eina spólu leggst í sófann og hefrur það gott. Ég þarf reyndar að fasta frá kl 12 að miðnætti því ég fer í blóðprufu í fyrramálið svo til ljósu og svo til læknisins. Þetta er alltaf sama stuðið.
Annar sé ég að ég hef fengið nokkrar heimsóknir á síðuna mína og það finnst mér gaman að sjá endilega skráið ykkur í gestabókina þegar þið skoðið síðuna , sem notabene er en þá í vinnslu hjá mér og gefið mér góð ráð ef þið hafið þau...
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
6.1.2007 | 16:20
HALLO HALLO
Er að reyna að gera síðuna mína fína. Setja myndir í albúm og svo framvegis.
Var reyndar að koma úr kringlunni. Skrýtið hvað það voru margir í Kringlunni þetta var alveg eins og á Þorláksmessu endalaust af fólki. Kannski eiga allir bara endalaust af seðlum og það er náttúrulega æði.
Ég fór til London fyrir jólin og er því með feitann Visa reikning verð sennilega að skipta honum en svona er að vera námsmaður..
En annaras er ég að fara í matarboð til mömmu í kvöld. Þetta er síðasti dagur Jóla matarboð og við fáum gott að borða annars ætlum við kanski að spila soldið eftir matinn en það er nú tilbreyting fyrir mig frá sjónvarpinu...Svona er að vera ólétt og nenna ekki að hreyfa sig...
Bloggar | Breytt s.d. kl. 17:16 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
6.1.2007 | 00:05
Fyrsta bloggfærsla
Halló allir saman er loksins búin að gera nýja blogg síðu....Tíndi lykilorðinu af hinni blogg síðunni minni og kann ekki að finna það aftur. Svo hér er ég komin og hlakka til að heyra í sem flestum þarna úti.........
Bloggar | Breytt s.d. kl. 12:14 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)