Færsluflokkur: Bloggar

Þriðjudagur...

Í dag er þriðjudagur og ég var að koma úr skólanum. Það var bara þetta venjulega straumar og stefnur í tónlist. Annars þarf ég bara að mæta tvisvar í viku í skólann núna á þriðjudögum og föstudögum. Við áttum að mæta fjórum sinnum í viku en kennararnir vilja að við notum hina tvo tímana til lesturs heima þar sem að óvenju mikill lestur fylgir þessum áföngum.InLove

Þetta eru góðar fréttir fyrir mig þar sem að ég ætla að klára námið þessa önnina og eignast kríli. Meiri möguleikar á að ég klári námið þegar ég þarf að mæta í færri tíma...Wink

Er á leiðinni í kringluna í útsölubrjálæðið. Ekki til þess að kaupa eitthvað á útsölu heldur til að ná í lykil fyrir stöð 2. Já ég ætla að fá mér stöð 2 núna á meðan ég bíð eftir að meðgangan klárist. Ég geri ekkert annað á kvöldin nema að horfa á sjónvarpið ég hef hreinlega bara ekki orku í neitt annað og því hef ég séð alla þættina á skjá einum og ríkissjónvarpið sýnir ekki mikið af skemmtilegum þáttum. Svo núna er það bara ákveðið stöð 2 skal það verða....

Hafið þið það gott í dag.Smile


Myndataka í dag.....

Mánudagur.....gaman. Oft hafa verið samdir textar um mánudaga, yfirleitt fjalla þeir þá um hversu leiðinlegir mánudagar eru. Ég er ekki sammála því að mánudagar séu alltaf leiðinlegir. Þó svo að það komi fyrir að þeir séu verstu dagarnir í vikunni Grin.

Einn textanna sem ég man eftir fjallar um unga stúlku sem að gekk berserksgang í skólanum sínum og drap samnemendur sína. Þegar yfirvöld spurðu hana afhverju hún hafi framið þessi voða verk þá svaraði hún "ég þoli ekki mánudaga" Wink. Þetta á að vera sönn saga.....

En mér líður vel í dag. Ég er á leiðinni í myndatöku hjá stelpu sem að kallar sig Auju. Hún tekur bumbu og krílamydir. Ég ákvað að skella mér í þessar mydatökur þrátt fyrir að vilja ekki láta taka myndir af mér í þessu ástandi mínu.

En þá er einmitt tilvalið að fá fagmann í verkið sem að hjálpar manni að líta vel út á myndunum.....LoL. Hér er linkurinn hennar Auju. http://www.auja.net/  Ég mun svo skella nokkrum myndum frá henni hér á síðuna mína....

Hafið þið það gott í dag.....InLove.


Föstudagur....

Annars er föstudagur í dag og því eiga allir að vera kátir helgin framundan og mikill snjór úti.Smile

Ég verð bara að læra um helgina svo kíki ég kanski líka á sjónvarpið.....

Eigið þið góða helgi InLove.....


Upp með tónlist.......

Þar sem ég er nú að læra til tónlistarkennara má ég til með að deila með ykkur hugsunum mínum sem að komu upp þegar ég horfrði á Kastljósið í gær. Þar þarf að fara að loka tónlistaræfingarhúsnæði unglinganna vegna mikilla fasteignagjalda og hafnagjalda. Reykjavíkurborg vill ekki styrkja þessa starfsemi, það er mjög furðulegt þar sem að margir unglingar nýta sér þessa þjónustu eða um 150 hljómsveitir í dag (það eru að meðaltali 4 í hljómsveit). Í þessu húsnæði verður þú að ganga vel um og mátt alls ekki neyta neinna vímuefna.  Ég veit fyrir víst að þetta er eina húsnæðið fyrir marga unglinga til þess að æfa í því ekki eru allir skólar með aðstöðu til þess að lána undir svona tómstundargaman. Ekki hafa allir unglingar til umráða bílskúr eða þess háttar og er það því ljóst að margir unglingar verða að hætta að æfa sem hljómsveit í ljósi þessarra lokunnar. Við getum sagt Húrra fyrir Reykjavíkurborg og þakkað henni fyrir að hugsa vel um alla unglingana okkar . Wink

Það eru ekki allir unglingar sem að vilja stunda íþróttir en nóg fer að peningunum til íþróttafélaganna. En engir peningar eru til ef unglingarnir hafa önnur áhugamál....Devil

 


Íslenskar konur druslur...

Oft heyrast raddir um það að íslenska kvennþjóðin sé lauslátari en margar aðrar þjóðir. ég spái oft í þessu sérstaklega þegar ég er að ferðast eða jafnvel þegar ég hitti útlendinga hér heima á barnum. Oftar en ekki set ég snúð á mig og vill ekki tala við þá útlendinga sem að reyna að tala við mig vegna þeirra ummæla í ferðabæklingum um Ísland að hér á landi séu konur mjög auðveldar og ódýrar. Það síðasta sem ég heyrði var að í bæklingi sem að vinkona mín las í bandaríkunum segði að þú gætir á Íslandi bankað upp á næstu dyr,  þar kæmi kona til dyra sem að byði þér inn í mikið ævintýri....FYNDIÐ. Sá útlendingur sem að myndi banka á mínar dyr fengi eingöngu blóðnasir og glóðurauga...Það er náttúrulega ævintýri. En ef að þetta er leiðin að bættum ferðamálum þá ok...Wink

 Og að lokum þá spyr ég bara hafið þið séð Melrose place og Beverly Hills 90210 á skjá einum. Þar eru makaskiptinn og druslugangurinn til fyrimyndar....Bandaríkjamönnum ferst að tala þeir þurfa ekkert að fara úr landi til þess að finna sér druslur....InLove


KÍKIÐ Á ÞETTA

Ég lofaði vinkonu minni í gær að setja linkinn fyrir hennar bloggsíðu hérna inn á mína síðu. Ég hvet alla sem að skoða bloggið mitt til þess að skoða þessa síðu líka hún er flott..Tounge

Linkurinn er......

http://gudnym.blog.is/blog/gudnym/

Það verður enginn svikin af því að skoða þessa síðu vel.....

Hafið þið góðan dag í dag.....Þangað til næst.....LoL


Kalt úti !!!!!

Í dag er kalt úti og þó svo að ég sé íslendingur þá er ég ekki mikið fyrir kulda. Húðin á mér verður öll skorpinn og þurr. Varirnar springa út og að lokum þá á maður aldrei almennileg föt til þess að fara út í frostið og verður því alltaf að fara í margar peysur og því um líkt til þess að verða ekki kalt. BRRRRRRRRR

WounderingFyndið alltaf finnst manni veturinn svo stuttur ha ha.InLove

Annars er ég bara að vinna í lokaverkefninu mínu og vona að allir sem koma inn á þessa síðu eigi eftir að eiga góðan dag Grin.


Skvísubandalagið í kvöld....

myndir 028

Í dag er miðvikudagur þá hittumst við vinkonurnar á kaffihúsi til þess að ræða merkustu atburði vikunar. Við hittumst alltaf á Vegamótum kl 18.Tounge Þetta er svaka stuð og nauðsynlegt fyrir okkur allar þar sem að mikið er að gera hjá öllum í dag og oft er þetta eini tíminn í viku sem að við hittumst saman. Það er nauðsynlegt fyrir alla að komast út og slúðra smá við vini sína...InLove

En nóg um það annars er bara allt gott að frétta búin að hafa það gott og reyndar hugsa um það á hverjum degi hvort ég eigi að byrja í ræktinniLoL. Veit bara ekki hvort það sé skynsamlegt fyrir óléttar konur sem eru komnar langt...


Loksins Loksins

erro_helga

Í dag tók ég niður jólaskrautið. Ég er búin að horfa á það síðan á þrettándanum og hugsa ég verð að taka þetta niður. En í dag þegar ég var búin að læra soldið þá dreif ég mig bara í þessu. O hvað þetta er leiðinlegt Devil hélt samt að það yrði tómlegt en allt er svo hreint eitthvað svo það er bara gott.

Ætla núna að kíkja í kringluna í íþróttabúð vantar eitthvað þægilegt að vera í og var svo heppin að fá að gjöf smá gjafabréf í Kringluna.Smile

Lilli þrengir svo að mér að það er nauðsynlegt fyrir mig að fá mér víðar og góðar buxur á þessum síðustu dögum meðgöngunnar...

Annars þarf ég svo að fara til mömmu. Þarf að læra betur á SPSS forritið svo ég geti klárað greininguna á spurningalistunum...SKóli skóli....

Vona að allir sem kíkja á síðuna mína hafi það gott í dag og sjáumst svo hress og kát...InLove

 

 

 


Komið kvöld......

Þá er komið kvöld. Fyndið hvað kvöldið kemur snemma svona í janúarmánuði.Smile

Sjónvarpsdagskráin er ekki skemmtileg í kvöld nema kanski nýi þátturinn á skjá einum.Smile Allir að tala um hvað hann sé góður það verður spennandi að vita hvernig hann fer.

En allavegna þá góða skemmtun þangað til næst.InLove

 


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband