Ótrúlegt hvað þau stækka fljótt

Í dag var ég að fá bréf sem að staðfesti það að litli prinsinn minn væri að fara að byrja í leikskóla. Hann fékk inn á Stakkaborg þessi elska. Ég var ánægð og líka smeyk litli gaurinn minn er orðin leikskóladrengur. Ég vona bara að hann plumi sig vel ég er hræddust um að hann verði hræddur þessi litla sál. Annars er hann algjör útidrengur og elskar að vera í félagskap. Svo að þessi  breyting verður sennilega góð fyrir hann þó svo að það sé hætta á að hann lendi í ryskingum við önnur börn.

Hinsvegar erum við litla fjölskyldan á leiðinni til Alicante bara í viku það verður algjör draumur fyrir okkur ætlum bara að slaka á og hafa það rólegt.

Þangað til síðar kv. frá Háteigsveginum.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Elín Sigurðardóttir

Hekla Björt á eftir að sakna leikfélagans - en kannski hittast þau bara á Stakkaborg það er aldrei að vita! Til hamingju með að koma honum á leikskóla og frábært næsta skref! Takk fyrir Ömmu Gíselu hún er frábær kona!

Elín Sigurðardóttir, 21.8.2008 kl. 21:18

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband