Færsluflokkur: Bloggar

Verð að fara að vinna í ritgerðinni minni

Jæja þá eru um það bil fimm vikur þangað til ég þarf að skila Bed ritgerðinni minni. Það þýðir að ég verð að fara að vinna í henni af krafti..Smile

Ætla að byrja á morgun. Og það á fullu...

Helgin er búin að vera fín lilli er búin að vera mjög góður en núna er hann búin að vera með mikið í maganum og líða mjög illa. Það er mjög erfitt....

Wink Við erum búin að ákveða nafn á litla kút. Og hann verður sennilega skýrður í enda næsta mánaðar....Afi hennar Eyrúnar skýrir hann Séra Árni frá Blöndósi....InLove

Annars er allt gott að frétta vonandi hafið þið það sem allra best kveðja::::::Kissing Guðrún


Langt um liðið.....

það fer ekki mikið fyrir bloggfærslum á þessari síðu þessa dagana en það fer bráðum að lagast. Stefni að því að blogga aðeins meira núna á næstunni.

Ég sé að Guðný er komin með laga þema á sína síðu....Cool Að þessu sinni er þema lagið Feel með Robby Williams....Íslandsvini.

Ég man nú hvenær við hlustuðum mikið á lagið en það eru ca. 3 ár síðan. Á Torvaldsen tímabilinu... Það var mjög gaman...Smile  Mikið stuð....Hérna kemur mynd af okkur á þessu tímabili reyndar í París...gudnygudrunparis

Annars er allt gott að frétta lilli braggast vel hann er orðinn 3700 grömm og ljósan segir að ég ætti að fá gullverðlaun í brjóstagjöf. Hann þyngist svo vel...Hér kemur ný mynd af honum....Eða okkur saman... 

 

DSCF1826

Hafið þið það gott þangað til næst...InLove

 


Þá er að nota tækifærið...

Jæja núna get ég loksins bloggað smá. Núna notar maður bara þann tíma sem að maður getur til þess að blogga. Bara á meðan lilli sefur skiptir ekki máli hvort það sé dagur eða nótt.Smile

Í dag hringdi Hemmi úr skólanum í mig hann vildi vita hvort ég væri orðin mamma. Enginn í skólanum hafði heyrt neitt ég gleymdi víst að láta vita "Svo gömlu bekkjafélagarnir mínir vissu ekki alveg hvort ég væri búin að þessu eða ekki" Ég var búin að láta Svövu vita en hún er eingöngu í listhúsinu og hefur greinilega ekki hitt neinn úr gamla bekknum okkar nýlega...InLove Úbbbbs......

Vinnuskólinn hafði samband og bauð mér yfirmannastöðu í sumar sem sagt ekki leiðbeinandi heldur að vera yfir leiðbeinendunum. Auðvitað þurfti ég að hafna því boði þar sem að ég verð í barneignarorlofi. En Guðrún Skólastjóri bauð mér hana bara næsta sumar í staðinn hún sagði að ég væri svo góður starfskraftur að hún vildi ólm fá mig næsta sumar. Gaman að fá svona hrós...

Annars ætla ég að nota tímann í að kíkja smá á sjónvarpið núna þar sem að lilli gúbbi sefur vært núna. Það líður ekki á löngu áður en ég verð mjaltarvél fyrir hann aftur svo það er best að nota tímann minn vel núna...Cool

 

En héðan er bara allt gott að frétta við erum bara heima allann daginn en það fer að lagast....

Vona að allir hafi það gott......Wink

Hérna er prinsinn minn í fyrsta baðinu það var soldið skrítið....Smile

DSCF1810

 

 


Alvara lífsins....

Jæja núna er ég með á hreinu hvað alvara lífsins er....Þetta hef ég loksins uppgvötvað þegar ég sit hérna heima allan daginn með litla prinsinn minn...En fyrir honum er ég gangandi mjaltarvél...og ég get ekkert gert nema að vera mjaltarvélin hans....Þótt þetta sé erfitt þá er það samt þess virði.´

Hef ekki en komist í skólann en fer í næstu viku. Var svo heppin að Svava kláraði verkefni fyrir okkur sem við skiluðum í þessari viku....Smile Það var voðalega gott.

Var reyndar að prófa að gefa lilla mínum snuð hann vill nefnilega sjúga allt. Það virkar svona brilljant hann er mjög ánægður með það og fer að sofa sjálfur í vöggunni sinni. Það eru skiptar skoðanir um snuðnotkun hjá litlum börnum og ljósan mín sagði mér að ég mætti ekki láta hann fá snuð fyrr en á 3 viku. En í dag hringdi ég í brjóstaráðgjafan á landspítalanum en hún var reyndar ekki við en konan sem að svaraði símanum var ljósmóðir og sagði mér að prófa snuðið.....

Svo ég gerði það.....

Annars er allt gott að frétta héðan Cool

Vona að þið hafið það sem allra best í dag...InLove

 


Þá er lilli kominn...

Lilli-0007 

 Þann 19 feb fæddist litli prinsinn minn hann var 12 merkur og 3080 gr sætasta barn í heimi auðvitað...Hann var minnstur á deildinni...

Núna er auðvitað allt heimilið í hers höndum þar sem að ég þarf stanslaust að vera að gefa litla krílinu að drekka. Ljósmóðirinn er búin að skipa mér að liggja í rúminu í tvær vikur með hann og gefa honum á brjóst svo að hann dafni vel....

Vildi bara láta alla vita að okkur líður vel og allt gengur vel...

Ég hef ekki getað svarað öllum í síma þar sem að hann er alltaf drekkandi og ef hann er ekki drekkandi þá er ég að reyna að hvíla mig. En það breytist nú bráðum....

Vil líka þakka öllum fyrir allt .....

Og vonandi hafið þið það gott kv Guðrún Helga....


fæðingardeildinn á konudegi

Jæja þá er sá dagur loksins runnin upp. Ég fer upp á fæðingardeild í kvöld og vonandi verður lilli komin í heiminn á morgun. Ég veit ekkert hversu langan tíma þetta tekur en það er víst misjafnt. Sumar konur fæða strax en aðrar þurfa nokkrar tilraunir í gangsetningu áður en þær fæða. Vonandi tekur þetta fljótt af hjá mér.

Annars er ég ekkert kvíðin og hugsa að þetta gangi allt vel allavegna er góður dagur í dag.

Vonandi hafið þið það gott í dag á sjálfan konudaginn.Smile


Ekki á morgun heldur hinn....

 

 Þá kemur loksins barnið í heiminn...Það verður æðislegt...Smile

Verð svo fegin þegar þessu ferli er lokið....LoL. Ég hlakka mest til að geta farið að fara í ræktina. Er farin að finna fyrir mikilli hreyfingaþörf. En ef allt gengur vel má ég fara tveimur vikum eftir fæðingu. Geðveikt gott. Ætla í átak sem er spes fyrir konur sem eru nýbúnar að eiga barn...Gaman..

Annars er allt gott að frétta héðan Dóri fræni var í heimsókn í gær og við spjölluðum mikið. Það var gaman að sjá hann þó svo að hann hafi farið að hlægja þegar hann sá mig honum fannst fyndið að sjá skvísu frænku sína svona þybbna eins og hann sagði samt í góðu.

Ætla að fara út að borða í kvöld kanski á Argentínu nammi hjá honum Ara sem er snilldar kokkur. Hann var á Einari Ben en fór svo yfir á Argentínu....Wink

Vona að þið hafið það gott um helgina ..... InLove


Ég fékk blóm í gær....

Núna er Valintínusardagurinn búinn og ég fékk blóm eins og flestar vinkonur mínar... Var ekki viss um hvort að ég fengi blóm en þegar Steini minn kom úr vinnunni var hann með stórann fallegan blómvönd svona á þetta að vera...Cool
Annars er ég hálf þreitt í dag og nenni ekki að gera neitt...Ætla bara að dúlla mér í rólegheitunum hérna heima og hvíla migInLove
Það er hvort sem er ömurlegt veður úti verð samt að klára eitt verkeni fyrir skólann á morgunPinch
Vona að allir hafi það gott í dag....Smile

Valintínusardagurinn...

 Í dag er Valintínusardagurinn dagur elskenda. Minn gaur er nú bara að vinna svo vð gerum ekkert í tilefni dagsins ég gaf honum samt gjöf tölvu dót þannig nær maður til hans....Tölvunörri...

Annars ætla ég að eyða deginum með skvísunum mínum í Skvísubandalaginu á Vegamótum. Engin af okkur er upptekin í kvöld því að makarnir eru flestir að vinna. En okkur líkar það vel því að þessi félagskapur okkar er góður....

En við skötuhjúin förum nú sennilega út að borða á föstudagskvöldið í staðin nú ef að lilli fæðist ekki í millitíðinni. Mér finnast svona dagar nauðsynlegir þótt ég viti vel að Valintínusardagurinn sé ekki íslensk hefð  bara til þess að vekja fólk upp úr hversdagsleikanum og gera eitthvað gott fyrir sambandið sitt.

Og ef að þú átt ekki maka hvað er þá betra en að fá kort sms eða eitthvað álíka frá aðdáanda ???Smile

Hafið þið það gott í dag...InLove

 


Læra læra læra.....

Í dag er ég búin að vera að læra á fullu og þannig verður þessi dagur. Á en þá eftir helminginn af Sibylíus verkefnunum og skiladagur á morgun. Þetta er rosalegt föndur fyrir manneskju eins og mig sem að er engin tölvunörri......Wink En ef maður vinnur með bros á vör þá heppnast allt.LoL 

Ætla rétt að kíkja í kaffi til mömmu og halda svo áfram....

Vil endilega kynna nýja tengilinn minn sem að heitir vinir en þar eru nokkrir vinir með skemmtilegar bloggsíður kíkið á það...Cool

Hafið þið það gott í dag.........

 


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband