Færsluflokkur: Bloggar
12.2.2007 | 13:16
sunnudagurinn 18 feb.
Var hjá lækninum í dag er búið að vera mikið illt og vona heitt og innilega að lilli / lilla eins og ljósmæðurnar segja fari að koma sjálfur út. Er orðin þreytt á öllum verkjalyfjum og verkjum.
En annars á ég tíma í gangsetningu kl 9 næsta sunnudag þann 18 feb. Og þá kemur lilli pottþétt sennilega 19 feb.
Sit núna og reyni bara að vera róleg yfir þessu öllu...
Læknirinn setti gat á belginn minn í von um að koma lilla í heiminn....
Sjáum til hvernig það gengur. Ég held hann vilji bara ekki koma í þennan heim. Hann er kanski soldið hræddur....
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
9.2.2007 | 23:10
X FACTOR.....
Verð bara að deila minni skoðun á X factor með ykkur. Ég veit bara ekki hvað á að segja en að mínu mati er eitthvað mikið að eyrunum á dómurunum í þessari keppni. Ég tel mig hafa ágæta þekkingu á tónlist og því hverjir eru ágætir flytjendur og hverjir ekki en samkvæmt dómaranna áliti í X factor hef ég enga þekkingu. Þeir hampa flytjendum sem að eru rammfalskir að mínu mati "nema að það sé eitthvað að hljóðinu í sjónvarpinu mínu".
Það eru tveir keppendur sem að mér finnst syngja mjög vel og það er yngsta stelpan sem er í hópi Ellýar og færeyski gaurinn í hópnum hans Einars Bárða. Ég hef mjög gaman af dúettunum í keppninni og í rauninni halda þeir keppninni uppi þar sem að allir hinir eru bara venjulegir Jónar með ok raddir. Annars er hún Jóhanna frá Svíþjóð hræileg söngkona hún hefur ekkert vald á neðri tónunum en samt heldur Einar Bárða henni inni í kepninni í annað skiptið er hann heyrnadaufur ???? Eða er eitthvað annað þarna á bakvið ????
Ég á bara ekki orð.......
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
9.2.2007 | 11:08
Helgin framundan......
Jæja núna er helgin loksins framundan... Og ég verð að vera mjög dugleg um helgina að læra þarf að skila fimm Sibilyus verkefnum á miðvikudag og greinagerð um bók í lok vikunar....Þarf að klára þetta um helgina til þess að vera örugg um að ná þessu.
Annars náðum við Eyrún í vöggu sem að hún lá í ásamt 10 öðrum börnum til mömmu hennar í gær. Lilli tilli verður sá 12 í vöggunni en Seifur Logi hennar Elínar var síðast í henni. Við fengum líka utan á vögguna og hún er voðalega fín.
Mamma hennar Eyrúnar vildi meina að lilli tilli væri lilla tilla. Mér brá soldið þar sem að hún hefur verið ljósa í 20 ár...Findið.... Hún sagði að þetta gæti samt allt eins verið strákur.
Vona að helgin verði góð hjá öllum....
Hafið þið það gott......
Bloggar | Breytt s.d. kl. 11:09 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
8.2.2007 | 10:59
Vikudagarnir....
Var að velta því fyrir mér hvaða merkingu vikudagarnir hafa. Mánudagur til mæðu, þriðjudagur til þrauta, Miðvikudagur til mjalta, Fimmtudagur til fjárs, Föstudagur til frægðar, Laugardagur til lukku og Sunnudagur til sælu. Er þetta rétt hjá mér ?????
Er ekki viss en svona man ég þetta. Vorum að ræða á skvísufundinum hvort við vissum hvaða dag vikunar við værum fæddar og sumar vissu það. Ekki ég, verð að athuga þetta hjá mömmu.
Annars fer dagurinn minn í dag í það að læra á að skila verkefni á morgun sem að ég er ekki byrjuð á en ég ætla að byrja núna.....
Betra seint en aldrei....
Hafið þið það gott í dag....
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
7.2.2007 | 11:24
Skvísubandalagið og nudd.......
Í dag er besti dagur vikunnar við vinkonurnar hittumst og svo fer ég líka og kíki á Elínu vinkonu mína sem er nuddari og hún ætlar að ýta fyrir mig á punkta sem að koma hríðum af stað. Það er auðvitað ekki víst hvort þetta virkar en afhverju ekki að prófa þessa leið þar sem að fæðingalæknirinn segir að lilli sé alveg tilbúinn til þess að koma út núna.
Ég svaf vel í nótt "loksins" en síminn byrjaði að hringja eldsnemma í morgun.
Auðvitað er það ekki alltaf svoleiðis ?.....
Þarf svo nauðsynlega að fara að læra en nenni því ekki á að skila verkefni á fösturdag og fjórum á miðvikudag eftir viku.... Verð að fara að vinna í þessu....
Vona að þið hafið það gott í dag....
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
6.2.2007 | 19:29
Breiðuvíkurmálið....
Breiðuvíkurmálið hræðilega er á milli tannana á fólki í dag. Þessi umfjöllun Kastljóssins á málefninu hefur heldur betur hrist í fólki og finnst öllum slæm meðferð mannanna sem að dvöldu í Breyðuvík hræðileg. Í rauninnni eigum við sem Íslendingar að standa upp og biðjast afsökunnar á þessu máli. Einnig ættum við að borga fórnalömbunum í Breiðuvík skaðabætur eins og frændur okkar í Noregi gera......En
Því miður hef ég ekki trú á því að ríkistjórnin okkar muni biðjast afsökunnar á þessu máli og ég er viss um að aldrei munu þeir borga fórnalömbunum bætur fyrir það sem að þau máttu þola af ríkistjórnarinnar völdum því að aðvitað er hún ábyrg.
Í rauninni skammast ég mín fyrir það að vera íslendingur þar sem að ofbeldi á börnum virðist ekki vera alvarlegur glæpur hér á landi.
Og auðvitað verður þetta mál þaggað niður á endanum.........
Þetta er Ísland í dag.......
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
5.2.2007 | 12:50
Kaffihúsakelling.....
Helgin mín samanstóð af því að liggja í dvala og horfa á sjónvarpið. Ekki spennandi fyrir 32 ára sjálfstæðan einstakling. Ég gat mig lítið hreyft ástæðan er ekki þunglyndi heldur ólétta svo ég fyrigef sjálfum mér þetta ástand mitt. En ég hugsaði samt hvað varð um gömlu góðu dagana þar sem að maður kíkti bara á kaffihús í stað þess að liggja í dvala ???? Svo fattaði ég það, ég er ekki mikið hrifin af því að vera út um allt í þessu ástandi mínu. En ætla samt að kíkja á kaffihús í kvöld í stað þess að liggja fyrir framan imbann í algjörri leti....
Núna er kláðinn kominn aftur og virðist vera alveg endalaus. Hann verður bara verri og verri, þetta er ekki gaman.
En núna er um það bil 10 dagar þangað til að lilli kemur í heiminn...Það verður gott að fá pláss í magan aftur. Við rífumst nefnilega endalaust um plássið ..Hérna er ein mynd sem að ég fann í tölvunni í skólanum af mér þegar ég var lítill. Vona að lilli verði svona...
Hafið þið það gott í dag.........
Bloggar | Breytt s.d. kl. 12:51 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
2.2.2007 | 10:39
Málstofa...
Jæja þá byrjar fjörið. Í dag ætla ég að hjálpa Steina með veislu sem að hann er að gera fyrir mömmu og vinnufélaga hennar. Þær eru að fara að halda málstofu í dag um kynjafræði. Þetta verða mjög flottar snittur sem að þær fá frá okkur. Og sennilega mjög flott málstofa hjá þeim.
Þetta er planið fyrir daginn í dag ekkert annað í bígerð hjá mér.
Ég er búin að vera með mikla verki undafarna daga veit voða lítið hvaða verkir þetta eru en held að þetta séu fyrivaraverkir.
Ég svaf mjög illa í nótt eins og undarfarnar nætur þetta er ekkert gaman. Vantar góð ráð....
Hafið þið það gott í dag......
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
1.2.2007 | 13:34
Heros þættirnir og svefnleysi......
Það kannast allir við svefnleysi og pirringinn sem að því fylgir en svefnleysi er einmitt að hrella mig þessa dagana. Ég horfi bara á sjónvarp langt fram á nótt því að ég næ ekki að sofna, það er kláði bakverkir og svo ofur þreyta sem koma í veg fyrir að ég sofni. Ekki skemmtilegt
Það er eins gott að Steini kunni að sækja alla skemmtilegu þættina á netið eins og t.d Heros þættina en ég er búin að horfa á fyrst 12 þættina. Mjög spennandi þættir.
Ætla að reyna etthvað nýtt í kvöld gott te og mikla ró, ég vona að það gangi upp.
Annars var mjög gaman hjá skvísubandalaginu í gær við sátum lengi og kjöftuðum um allt á milli himins og jarðar. Það var líka full mæting og því mikið að spjalla um.
Vona að allir hafið það gott í dag..........
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
31.1.2007 | 12:45
Miðvikudagur til mæðu...
Ekki aldeilis því að þá hitti ég Skvísubandalagið sem saman stendur af góðum og skemmtilegum stelpum sem að hafa margt skemmtilegt að segja. Hittingurinn er eins og vanarlega á Vegamótum kl.18.
Veit líka að miðvikudagur er til mjalta en ekki mæðu notaði þetta bara svona núna...
Hérna eru Eyrún og Harpa en þær eru meðlimir Skvísubandalagsins.
Handboltinn.....
Sögur eru um það að ótrúlegasta fólk hafi fylgst með handboltanum í gær. Fólk sem að veit ekki hvað handbolti er horfði á leik íslendinga og dana í gær enda mjög spennandi leikur.
Ég gerði heiðalega tilraun til þess að horfa á allan leikinn en endaði í sturtu. Ástæðan er ekki sú að mér leiðist handbolti heldur verð ég alltaf svo spennt og æst að líkaminn minn og skapið mitt þola ekki svona spennu eins og fylgdi leik íslendinga og dana í gær.
Flottur leikur sem var hníf jafn, íslenska landsliðið stóð sig með prýði.
Vonandi hafa allir það gott í dag..
Bloggar | Breytt 1.2.2007 kl. 00:50 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)