Færsluflokkur: Bloggar

Það er leikur að læra....

Jæja þá er ég búin að fara til Baldurs íslenskukennara og í blóðprufu í dag. Ástæðan fyrir því að ég þurfti að hitta Baldur var sú að ég fékk hærri einkunn í skólanum fyrir ári síðan en önnur stelpa í skólanum og hún var ekki ánægð með það.Woundering

Blóðprufan var fín eins og vanalega ég fór frekar seint í dag vegna þess að ef ég mæti snemma um morgunnin þarf ég að bíða mjög lengi, þar sem að allir eldriborgararnir mæta snemma og láta taka blóðprufur af sér á þriðjudögum. Konurnar spurðu mig þrisvar sinnum hvort ég væri fastandi og trúðu mér eiginleg ekki fyrr en ég sagði þeim að ég hefði vaknað um ellefu í morgun. Fyndið Cool

Annars þarf ég að mæta í tíma núna í skólanum það er alltaf gaman að mæta í skólann.  Whistling

Vona að þið hafið það gott í dag....Tounge


Mánudagar eru nudd dagar.....

Jæja ég byrjaði vikuna á því að vakna kl 8 eins og flest allir landsmenn. Ég er ekki hrifin af því að vakna svona snemma og kem mér því oftast undan því svona er að vera námsmaður í dag....Smile

En ástæðan fyrir því að ég vaknaði svona snemma var að ég þurfti að mæta til ljósu og læknisins. Þær voru bara hressar og sögðu að allt væri eins og það ætti að vera fyrir utan kláðann. En læknirinn eiginlega lofaði mér því að hún myndi setja mig á stað á 38 viku sem er eftir tvær vikur en ég fæ það alveg á hreint í næstu viku.

Ég er mjög fegin nenni þessum kláða ekki mikið lengur. Var að hugsa um að verða Hindúi eða Búddi, þar sem að ég hugsa alla daga og sérstaklega allar nætur "mig klægjar ekki"Þetta er orðið soldið þreytt. Og mikil hugleiðsla sem að fylgir þessu ölluFrown...

Verð bara að muna að brosa því að þá er allt helmingi auðveldara. Og muna að klukkan tvö í dag fer ég í nudd á Nordika til Elínar vinkonu minnar. Þetta er munaður sem gerir lífið alveg yndislegt.

Ég mæli með því fyrir alla að gera eitthvað gott fyrir sig í byrjun vikunar þannig verður vikan mjög góð.Cool

Hafið þið það gott í dag.....InLove

 


Útsölur.......

Jæja þá eru það útsölurnar. Fór með mömmu á útsölur.          

Ekki fata útsölur því auðvitað kemst ég ekki í neinar stærðir sem að eru í boði í búðunum í bænum heldur fórum við á húsgagna útsölur. Og viti menn auðvtað fékk ég þá flugu í hausinn að mig vantaði sófa í stofuna. Í stað ljóta Ikea sófans sem að við erum með. Ikea sófinn er ekki gamall en hann er mikið notaður og pullurnar orðnar mjög lélegar í honum svo auðvitað er tíminn réttur núna þegar húsgagnaverslanir landsins eru með kosta kjör í gangi hjá sér að skella sér á nýjan sófa. Hringdi svo í Steina og fékk hann til að samþykkja þetta hjá mér en við ætlum að fara saman í leiðangur á mánudaginn og skoða sófana sem að mér leist vel á....Sniðugt....Smile

En maður gerir allt í staðin fyrir að læra....Cool

Annars er helgin frammundan og ekkert að gera hjá mér..Shocking

Vona bara að allir hafi það gott um helgina...Cool


Auðkennislykill......

Við hittumst allar skvísurnar í gærkvöldi eins og vanalega Wink. Það var mjög gaman, og spjallað var um allt milli himins og jarðar. Eitt af okkar aðal umræðuefnum í gær voru þjóðfélagsmálin, hvað er að gerast, það er eins og að við fólkið í landinu séum einungis strengjabrúður ráðamanna.

Auðkennislykillinn er eitt af því sem að ég er mjög pirruð á þessa dagana. Afhverju þarf ég að hafa einhvern lykil til þess að nota heimabankann minn? Mér finnst skrýtin lykt af þessu. Er þetta í rauninni gert til þess að passa okkur fyrir þjófum og vondum mönnum? Ef svo er afhverju getum við ekki fengið svona lykil til þess að passa okkur fyrir brjáluðum ráða og viðskiptamönnum landsins Blush.

Verðum við ekki að fara að gera eitthvað í þessum málum. Finnst okkur ekkert að því að vöru verð hækki upp úr öllu valdi en launin séu enn þau sömu hjá fólkinu. Er það ekki skrýtið að ráðamenn landsins geri allt sem að þeir vilji án þess að spyrja kóng né prest Gasp

Mér finnst þetta ekki í lagi Frown....

Hafið þið það gott í dag......InLove


Tölvur og tónlist

Jæja skólinn á enda í dag og þá er bara að fara heim að læra.

Var í tíma sem heitir tölvur og tónlist  Smile   Gaman.....

Í dag vorum við að læra á Sybilius forritið. Ég hef reyndar notað það soldið sjálf en bætti þó við þekkingu mína á forritinu í tímanum í dag. Sybilius er sem sagt mjög merkilegt tónlistarforrit. Það virkar soldið eins og word en er notað til þess að skrifa nótur og útsetja tónlist. Ég mæli með þessu forriti fyrir alla þá sem hafa gaman af tölvum og tónlist. Við eigum eftir að læra meira á þetta forrit í vetur og kennarinn segir að þegar hann hafi lokið við að kenna okkur á það þá eigum við að geta útsett flóknustu sinfóníur í Sibelius...InLove

Sem sagt við verðum Sybilius meistarar....Whistling

En annars er allt gott að frétta héðan og allir hafa það gott Cool...

Hafið þið það gott í dag.....Og munið að brosa...Smile

 


Hæ Hó

Jæja þá er dagurinn senn á enda.

Hélt fyrilestur í skólanum í dag um tónlistarsmekk á unglingsárum. Mjög spennandi viðfangsefni því að unglingatónlist er sérstakur iðnaður sem þénar gífurlega mikinn pening á ári eða marga billjónir dollara.

Unglinga popp er einhverskonar iðnaðarpopp sem er þröngvað inn á unglinga, þeir hafa ekki val þetta er spilað í útvörpum og sýnt í sjónvörpum. All fyrir unglingana. Bandarískir unglingar 13 til 17 ára, eyða um 10500 klukkustundum í hlustun á vinsælli tónlist samkvæmt heimildum frá árinu 1985. (Davies 1985). Stelpur hlusta meira á dægurlaga tónlist heldur en strákar. Þessi hlustun virðist svo aukast með unglingsárunum því eldri því meiri tónlist. Sérstaklega hjá stelpum  

Afrísk-bandarískir unglingar hlusta meira en hvítir unglingar og einhver mismunur er á milli fylkja. Unglingar hlusta mest heima og mest í einrúmi  

lUnglingatónlist er að mestu sköpuð af unglingum, dæmi ungt fólk virðist semja tónlist fyrir ungt fólk.
lÚtgáfunni er stjórnað af tónlistariðnaðinum.
lÞessi tónlist er fremur viðskiptalegs eðlis heldur en að beinlínis sé hægt að kalla hana list.
lÞetta er stöðluð tónlist sem að heftar val unglinganna. Þar sem að smekknum er þröngvað upp á unglinganna eftir lögmáli viðskiptalífsins.Pinch
Í rauninni er ekkert hér sem að kemur mér á óvart en þetta er efni sem að gaman er að skoða. Ég hélt fyrilestur upp úr kafla í sálfræðibók sem að heitir.Tónlistar smekkur á unglingsárum og er eftir Dolf Zillmann og Su-lin Gan Kafli úr bók frá 1997.
Mjög spennandi lestning ef þú hefur áhuga á tónlistarmynstri unglinga.Cool 
Annars er allt gott að frétta fór upp á spítala í skoðun áðan og hann er ekki á leiðinni í heiminn í dag en þó búin að skorða sig svo það verður samt fljótlega.Smile
Fékk líka bubu myndir í dag og hér er ein.Tounge
2
Vonandi hafið þið það gott í dag....Wink


JÆJA

Nudd......

Í dag er ég að fara í nudd. Hvað er betra á mánudegi en að láta dekra við sig. Ég fer til vinkonu minnar sem að er nuddari og reyndar yfir nuddari á Nordika hótel það verður gaman. ég mæli með því að allir fari í nudd af og til bara til þess að láta dekra við sig.InLove

 Skólinn....

Fyrst verð ég að lesa grein sem að er ansi löng á ensku og fjalla um Ungmenni og tónlist. Ég verð að halda fyrilestur um þessa grein í tíma á morgun. Einnig verð ég að dreifa dreifiritum um greinina.

Þetta verður sennilega spennandi og góður dagur....Wink

Hafið þið það gott í dag....Smile


Bóndadagurinn...

Í dag er Bóndadagurinn og eins gott að vera góður við bóndann þar sem að maður vill að hann sé góður við mann sjálfann á Konudaginn. Síðast gleymdi ég Bóndadeginum svo ég verð að reyna eins og ég get að gera hann spes í dag....Smile. Til að bæta upp síðasta ár..

Ætla að bjóða mínum bónda út að borða. Við förum sennilega á Einar Ben en hann er yfirkokkur þar. Hann var að setja upp nýan matseðil sem við ætlum að smakka á nammi  Joyful. Ætla svo að kaupa smá gjöf fyrir hann en EKKI BÍL Sick.

Það er tilvalið fyrir manneskju eins og mig að til séu dagar eins og Bóndadagurinn þar sem að ég hef mjög gaman af því að fara út að borða. Þessir dagar eru alltaf notaðir í það að fara á góða staði og fá góðan mat...

Vona að allir muni að gera eitthvað skemmtilegt um helgina LoL. Þó svo að það sé kalt og leiðinlegt veður úti Shocking.

Munið að ef maður brosir sig í gegnum það þá er það miklu auðveldara fyrir mann...Whistling.

Vona að allir hafi það gott um helgina........Sjáumst hress og kát.......

Þessi mynd er af einum dýrindis réttunum sem að Steini eldar....Á Einari Ben.

CRW_1986

 


Erfiðar nætur....

Undafarnar nætur hafa verið erfiðar. Mig dreymir fáránlegustu hluti nótt eftir nótt. Endalausir byssubardagar og óveður. Hef verið að spá í hvort að sjónvarpið eigi einhverja sök á þessu. En það gæti líka verið óléttan ????

Annars allt gott að frétta frá mér var á skvísufundi í gær og það var mjög gaman...SmileVið spjölluðum um allt milli himins og jarðar....Smile

Gleymdi að segja frá því að ég skellti mér í bíó um daginn á Mel Gibson myndina um Mayjana. Mjög flott mynd reyndar mikið blóð og ofbeldi en svona var þetta í Mexíkó. Vel farið með söguna um mann fórnirnar þarna.

Sá líka Children of men í vikunni , en ekki í bíó heldur á DVD. Mjög flott mynd og innihaldið fróðlegt þar lifðu allir í veröld þar sem að engin börn voru til. Góð mynd mæli með henni...fyrir alla. Grin

Í lokin vil ég minna alla á að klappa fyrir þreyttu þingmönnunum okkar sem að berjast um Rúv málið á þingi og hafa notað 100 klukkustundir í það. Mikilvægt málefni sem verður að finna lausn á.....InLove

Það er náttúrulega óþarfi að ræða mál fátækra, öryrkja, ellilífeyrisþega og annara manna í þjóðfélaginu. Við verðum að finna lausn á málum Rúv sem að hefur verið til í 77 ár. En auðvitað gengur illa að finna lausn á því máli þar sem að stjórnarandstæðan er etthvað að tjá sig og trufla gang mála. Þeir vilja bara að málinu sé frestað miklar ófreskjur þar á ferð. 

En í alvöru tilhvers er stjórnarandstæðan....Wink

Vona að þið hafið það gott í dag InLove...


Geðveikt gaman....

Er búin að vera á fyrilestri um byggingu rannsóknaritgerða. Mjög gaman Smile ha ha. Verður maður ekki bara að brosa sig fram úr þessu öllu...Grin

Vitið þið að ísleskufræðingarnir í Kennaraháskólanum tala um word forritið sem "orðið". Vikona mín úr skólaum kippti í mig og spurði þurfum við að kaupa þetta forrit "Orðið" ég skildi hana ekki alveg og sagði hvað ertu að tala um "word" ??? Hún svaraði já auðvitað kalla þeir það orðið....hérna í Kenaraháskólanum...LoL

Þetta er alveg ótrúlegt...

Miðvikudagur aftur Tounge og við skvísurnar að fara að hittast klukkan 6 á Vegamótum það verður gaman. Hlakkar mikið til........

Hafið þið það gott í dag......InLove

 


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband